Heimilisfriður - heimsfriður:
Drögum úr hernaðarhyggju og bindum enda á ofbeldi gegn konum.
Ákveðið hefur verið að þema 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi árið 2013 verði áfram „Heimilisfriður – heimsfriður; Drögum úr hernaðarhyggju og bindum enda á ofbeldi gegn konum“. Kallað var eftir athugasemdum og upplýsingum frá öllum þátttakendum átaksins síðustu ár; aðgerðarsinnum og samtökum sem vinna með mannréttindi, kynbundið ofbeldi og samfélagsleg réttlætismál víðsvegar í heiminum.
Átakið 2013 beinir spjótum sínum að vitundarvakningu og aðgerðum er lúta að margþættum snertiflötum kynbundins ofbeldis og hernaðarhyggju, ásamt því að sýna tengslin á milli baráttu fyrir efnahagslegum og félagslegum réttindum og baráttunnar til að binda endi á kynbundið ofbeldi. Með þemanu er ætlunin að draga fram hvernig hernaðarhyggja getur skapast í samfélagi og menningu ótta; samfélagi sem byggir á ofbeldi eða hótunum um það, kúgun, ásamt hernaðaríhlutun sem viðbrögðum við pólitískum og samfélagslegum deilum eða til að styrkja efnahagslega og pólitíska hagsmuni.
Hernaðarhyggja er kerfislægt ofbeldi sem brýtur gegn mannréttindum, mannlegri reisn og öryggi kvenna, karla og barna nánast hvar sem er í heiminum. Áhrif hernaðarhyggju má glöggt sjá ef skoðuð er úthlutun fjármagns til heilbrigðisþjónustu, menntunar og opinberra stofnana annars vegar og til hernaðarmála hinsvegar. Áhrifanna gætir einnig í löggjöf og stefnum sem útsetja konur og minnihlutahópa sérstaklega fyrir misnotkun; í stefnum stjórnvalda sem fela í sér mismunun og aðgerðum sem samþykktar eru eða framkvæmdar af stjórnvöldum og á notkun hernaðaríhlutanar frekar en samningaumleitana í málum á pólitískum og samfélagslegum vettvangi.
Ennfremur ítrekar átakið að réttindi kvenna eru mannréttindiog áréttar að í gegnum tíðina hefur feðraveldið haldið á lofti skaðlegum hefðum og löggjöf sem viðurkennir ofbeldi gegn konum sem eðlilegt ástand og neitar konum um rétt þeirra til að lifa með reisn.
Síðustu 22 ár hefur alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi verið tileinkað baráttu og skipulagningu á aðgerðum til þess að binda endi á ofbeldi gegn konum bæði á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Dagsetning átaksins frá 25. nóvember (alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi á konum) til 10. desember (alþjóðlegi mannréttindadagurinn) var valin til þess að tengja kynbundið ofbeldi og mannréttindi á táknrænan hátt ásamt því að leggja áherslu á að ofbeldi gegn konum er alþjóðlegt mannréttindabrot. 16 daga átakið hefur verið leið til vitundarvakningar meðal almennings og frekari aðgerða sem kalla eftir því að bundinn verði endir á allt ofbeldi gegn konum, alls staðar í heiminum. Miðstöð fyrir alþjóðlega forystu kvenna/Center for Women’s Global Leadership er alþjóðlegur skipuleggjandi átaksins.