Flýtilyklar
2023
Opið fyrir styrktarumsóknir hjá Uppbyggingarsjóð EES á Kýpur
13.03.2023
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Active Citizens Fund á Kýpur fyrir tvíhliða samstarfi við íslenska aðila og rennur skilafrestur út 14. maí 2023 klukkan 20:59 GMT (23:59 EEST).
Lesa meira
Umsögn MRSÍ um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðning við þolendur þeirra
08.03.2023
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um tillögu til þingsályktunar um aðgerðir gegn kynferðisbrotum og aukinn stuðning við þolendur þeirra, þskj. 39, 39. mál
Lesa meira
Hjalti Björn Hrafnkelsson ráðinn verkefna- og margmiðlunarstjóri
08.03.2023
Hjalti Björn Hrafnkelsson hefur verið ráðinn verkefna- og margmiðlunarstjóri hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands
Lesa meira
Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið Réttarstaða eldra fólks.
21.02.2023
Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur gefið út ritið Réttarstaða eldra fólks. Ritið er aðeins
að finna á rafrænu formi en framkvæmdastjórn skrifstofunnar ákvað árið 2012 að gefa rit
skrifstofunnar framvegis út á netinu. Var ákvörðunin fyrst og fremst tekin á grundvelli
umhverfisverndarsjónarmiða.
Í upphafi ritsins er fjallað um þróun löggjafar í málefnum eldra fólks, bæði innlenda og
alþjóðlega. Þá kemur kafli um réttaröryggi eldra fólks þar sem fjallað er m.a. um
stjórnskipulag málefna eldra fólks, mannréttindi eldra fólks og úrræði til að tryggja
réttaröryggi þeirra. Ritinu er svo skipt í kafla eftir einstökum réttindum, svo sem réttinum til
framfærslu- og félagsþjónustu og réttinum til heilbrigðisþjónustu. Inntak réttarins er svo
skilgreint út frá þeim innlendu og erlendu réttarheimildum sem við eiga þar sem sérstök
áhersla er lögð á að draga fram þær réttarheimildir sem lúta að eldra fólki.
Lesa meira
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um tillögu til þingsályktunar
07.02.2023
Umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022-2025, þskj. 834, 592. mál.
Lesa meira