Flýtilyklar
Vekjum athygli á opnum fundi um Geðheilbrigðisstefnu Í Mótun í húsnæði Geðhjálpar, nk. föstudag kl. 14:30
Þér er boðið á opinn fund samráðsvettvangs úrræða á geðheilbrigðissviðinu um GEÐHEILBRIGÐISSTEFNU Í MÓTUN í húsnæði Geðhjálpar í Borgartúni 30 þann 20. nóvember klukkan 14:30.
Á fundinum mun Guðrún Sigurjónsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra í velferðarráðuneytinu, fjalla um eftirfarandi:
Hvernig hefur vinnu við Geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaráætlunina verið háttað?
Hver eru helstu áhersluatriði stefnunnar?
Hvar er stefnan núna, hvernig er ferlið framundan?
Hvaða samsvörun ef einhverja mátti sjá í umsögnum félaganna og annarra umsagnaraðila um drög að stefnunni?
Hvaða ábendingar voru teknar til greina?
Hvernig verða fjármunir til verkefna tryggðir?
Gestir eru beðnir um að taka með sér veitingar „Pálínuboð“.
Geðhjálp býður upp á kaffi.
Samverustund & spjall í lok fundar.
Fjölmennum!