Flýtilyklar
Tvíhliða ráðstefna á netinu - Lettland
Tvíhliða ráðstefna á netinu- Lettland
Uppbyggingarsjóður EES er fjármagnaður af Íslandi, Liechtenstein og Noregi með því markmiði að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins og efla tvíhliða samstarf milli EFTA ríkjanna innan EES og fimmtán viðtökuríkja sjóðsins í Evrópu.
Þann 8. desember næstkomandi heldur Lettland tvíhliða ráðstefnu á netinu og hvetjum við frjáls félagasamtök, stofnanir sveitarfélaga og aðra aðila, sem áhuga hafa á samstarfi um verkefni styrkt af Uppbyggingarsjóðnum, til að skrá sig. Skráning fer fram á eftirfarandi slóð og síðasti skráningardagur er 6. desember:
https://forms.gle/cR5eQmQrWvkCAgRRA
Þess er óskað að þátttakendur útbúi "quick business card" að eftirfarandi fyrirmynd(þarf bara að setja upplýsingar inn í eyðublaðið): https://ieej.lv/ODomZ
Þetta kall eftir umsóknum í Uppbyggingarsjóð EES í Lettlandi leggur áherslu á verkefni sem miða að því að styrkja starfsemi samtaka (capacity building) mun sérfræðingur frá Slóvakíu halda fyrirlestur um efnið. Jafnframt verður sagt frá fyrri verkefnum sem skilað hafa árangri og síðan fara fram vinnustofur og umræður. Gert er ráð fyrir að viðburðurinn taki þrjár klukkustundir.