Flýtilyklar
This Week in Iceland at the Library
This Week in Iceland at the Library
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla-spjall-og-umraedur-welcome/week-iceland-library
Borgarbókasafnið og RÚV English bjóða ykkur á viðburðinn „The Week in Iceland at the Library“ þar sem tækifæri gefst til að heyra um og ræða það sem helst hefur verið í fréttum á Íslandi. Þáttastjórnandinn Alex Elliott, mun fara yfir efni nýjasta þáttar„The Week in Iceland<https://www.ruv.is/thaettir/the-week-in-iceland>“ og gefa þátttakendum færi á að spyrja, greina og spjalla. Þær umræður sem fara fram á bókasafninu verða síðan efni nýs þáttar sem ber heitið „The Week in Iceland at the Library“ og verður hann aðgengilegur á netinu fljótlega eftir viðburðinn. Ef þú vilt taka þátt, endilega skráðu þig hér<https://forms.gle/fNnnpRPhUA8iCaCu6>! -Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.
The Week in Iceland verður á Borgarbókasafninu Kringlunni:
9. september
7. október
4. nóvember
9. desember
Café Lingua 5. septemer kl. 17:00 - Borgarbókasafnið Gerðubergi.
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/fraedsla/cafe-lingua-taelensk-tunga-og-menning
Velkomin á Café Lingua viðburð tileinkaðan tælenskri tungu og menningu. Eva Nittaya gefur innsýn í tælenska tungu og menningu og gefst gestum tækifæri til að læra nokkrar setningar á tælensku og skrifa nafnið sitt með tælensku letri. Sýndir verða tælenskir dansar, leikin verður tónlist og hægt verður að smakka á nokkrum tælenskum réttum.
Börn eru hjartanlega velkomin og verða tælenskar barnabækur meðal þess sem hægt verður að skoða.