Flýtilyklar
Þekktu rétt þinn, þekking er vald!
Félags- og jafnréttismálaráðherra, Kvennaathvarfið og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa gert með sér samkomulag um verkefni sem ætlað er að efla fræðslu um þjónustu og lagaleg úrræði í þágu kvenna af erlendum uppruna hér á landi sem hafa orðið orðið fyrir heimilisofbeldi.
Ásmundur Einar Daðason, Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins og Ellen Calmon, formaður Mannréttindaskrifstofu Íslands undirrituð samkomulag þessa efnis í dag sem ber yfirskriftina Þekktu rétt þinn, þekking er vald. Ásmundur Einar sagðist við undirritun samkomulagsins vonast til að það takist vel og komi að góðu gagni: „Þörfin fyrir verkefni sem þetta er sannarlega fyrir hendi, það er mikilvægt að sinna þessu af kostgæfni og það er ég fullviss um að verði gert.“
Haldin verða námskeið og unnið að útgáfu fræðsluefnis um íslenskt réttarvörslukerfi, verkferla og úrræði. Meðal annars verður veitt fræðsla þar sem fjallað er um ferli skilnaðar- og forsjármála, reglur um dvalarleyfi og margvíslegar upplýsingar um mikilvæg réttindi og skyldur sem mikilvæg eru konum við þessar aðstæður.
Í samkomulaginu um verkefnið er kveðið á um samráð við innflytjendaráð, dómsmálaráðuneytið, lögreglu, Barnaverndarstofu, félagsþjónustu sveitarfélaga, heilsugæslu, félög og hagsmunasamtök innflytjenda og mögulega önnur félagasamtök.
Stofnaður verður starfshópur sem útbýr fræðsluáætlun og námskeið fyrir konur af erlendum uppruna sem búa við félagslega erfiðleika og hafa lítið stuðningsnet. Stuðst verður við bæklinginn Réttur þinn auk fræðsluefnis sem Kvennaathvarfið og Mannréttindaskrifstofa Íslands hafa yfir að ráða. Auk skipulagðra námskeiða verður leitast við að ná til einangraðra kvenna og þeirra sem ekki eru líklegar til að heyra af eða sækja slík námskeið. Þannig er fyrirhugað að nálgast konurnar í gegnum Samtök kvenna af erlendum uppruna, Kvennaathvarfið, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Rauða krossinn á Íslandi, Borgarbókasafnið, Hjálparstarf kirkjunnar, félagsstarf í Breiðholti og miðbæ o.fl.
Verkefnið er hluti af aðgerðum sem tilgreindar eru í framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.