Flýtilyklar
Ólöf Embla Eyjólfsdóttir ráðin lögfræðingur hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands
Ólöf útskrifaðist 2021 með mag.jur. gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands en hún hafði áður lokið BA í heimspeki frá sama skóla og meistaragráðu í heimspeki frá Oxfordháskóla 2010. Undanfarið hefur hún starfað sjálfstætt sem talsmaður umsækjenda um alþjóðlega vernd en fyrir það starfaði hún sem talsmaður hjá Rauða krossinum. Hún hefur lengi verið viðriðin mannréttindastarf með einum eða öðrum hætti og m.a. unnið sem sjálfboðaliði fyrir Amnesty International og Rauða krossinn. Samhliða laganáminu sat hún í starfshópi forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu 2018 og endurhannaði mannréttindavef stjórnarráðsins í sumarstarfi hjá dómsmálaráðuneytinu 2020.