Hádegismálþing: Réttindi eldra fólks

Þriðja hádegismálþing Mannréttindaskrifstofu Íslands á árinu verður haldið föstudaginn 31. maí klukkan 12:00-13:00 í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Þetta málþing, sem ber heitið „Réttindi eldra fólks“, er haldið í samstarfi við Mannréttindastofnun Háskóla Íslands. Á málþinginu munu Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun, og Brynhildur G. Flóvenz, dósent og formaður stjórnar Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, flytja erindi um mikilvægi og áskoranir réttinda eldri borgara. Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastýra Mannréttindaskrifstofu Íslands mun stýra málþinginu og umræðum.

Dagskrá:

Málþingið er opið öllum og við hvetjum alla áhugasama um réttindi og velferð eldri borgara til að mæta - unga sem aldna! Aðgengi að Fyrirlestrasalnum er gott og viðburðurinn verður tekinn upp og síðar gerður aðgengilegur á vefsíðu og facebooksíðu Mannréttindaskrifstofunnar.

Við hvetjum alla til þess að melda sig og deila viðburðinum á Facebook!


Mannréttindaskrifstofa Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands var stofnuð í Almannagjá á Þingvöllum hinn 17. júní 1994, á fimmtíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Skrifstofan er óháð og vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi. 

Valmynd

Skráðu þig á póstlista MRSÍ

Skráðu þig og fáðu fréttir, upplýsingar um ný verkefni og fleira frá okkur.

Mannréttindaskrifstofa Íslands | Kt. 620794-2019

Túngata 14 | 101 Reykjavík | Sími 552 2720 | info[hjá]humanrights.is

Skrifstofan er opin frá 9-12 og 13-16