Flýtilyklar
Gestir frá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna
Á dögunum heimsóttu Henrik Fredborg Larsen, framkvæmdastjóri Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, og Edna Muratagic, verkefnastýra Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna, Mannréttindaskrifstofuna. Margrét framkvæmdastýra kynnti fyrir þeim starfsemi skrifstofunnar og ræddi möguleika á samstarfi um verkefni á sviði mannréttinda.