Flýtilyklar
Café Lingua | Heimsins jól - jólalög og jólaglögg - Café Lingua | Christmas around the world
Menningarhús Grófinni
- English below -
Fimmtudagur 8. desember kl. 17.00-18.30
Heimsins jól – jólalög og jólaglögg. Borgarbókasafn Grófinni. Hátíðarstemning þar sem gestir syngja saman jólalög frá ýmsum löndum undir stjórn Margrétar Pálsdóttur. Meðal þeirra tungumála sem sungið verður á eru danska, enska, flæmska, franska, íslenska, pólska, serbneska, spænska, sænska, tagalog og þýska. Múltíkúltíkórinn, fjölþjóðlegur sönghópur kvenna, gítarleikarinn Ársæll Másson og slagverksleikarinn Rafael Cao Romero ganga til liðs við söngglaða gesti. Boðið verður upp á jólaglögg og smákökur. Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.
Café Lingua – lifandi tungumál er tungumálavettvangur á vegum Borgarbókasafnsins í samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu. Eitt af markmiðum Café Lingua er að virkja þau tungumál sem hafa ratað til Íslands með fólki hvaðanæva að og auðgað mannlíf og menningu ásamt því að vekja forvitni borgarbúa á heiminum í kringum okkur.
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín R. Vilhjálmsdóttir
Netfang: kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Sími 4116122
Grófin Culture House
Thursday December 8th 5-6.30 pm
Christmas around the world, Reykjavik City Library, Tryggvagata 15. A festive program with songs from all over the world. The singing wil be led by Margrét Pálsdóttir. Mulled wine and chrismast cookies.
Café lingua – living languages is a language platform on behalf of Reykjavik City library in cooperation with different partners in society. One of the goals of Café Lingua is to activate the languages that have found their way to Iceland, enriching its life and culture in the community, while at the same time to arouse the curiosity of the citizens of the world around us.
For further information contact:
Kristín R. Vilhjálmsdóttir
kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Tel: 4116122